05.10.26 - 09:32
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður Ísraels sakaður um að hrækja á aðstoðarmann Heimis

Heimir Hallgrímsson.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson.

Mynd: EPA
Ísraelska fótboltasambandið vill ekki tjá sig um ásaknir um að leikmaður liðsins hafi hrækt á einn af aðstoðarmönnum Heimis Hallgrímssonar hjá írska landsliðinu.
Damien Doyle, styrktarþjálfari írska landsliðsins, fullyrðir að ísraelskur leikmaður hafi hrækt á sig þegar liðin yfirgáfu völlinn í hálfleik í 1-1 jafntefli í Þjóðadeildarleik sem spilaður var á hlutlausum velli í Backa Topola í Serbíu í gær.
Heimir neitaði að tjá sig um ásökunina eftir leikinn og sagði að hún gæti verið tilkynnt. Heimir segist ekki hafa séð atvikið.

TENGT EFNI
Heimir: UEFA verður að grípa inn í og gera eitthvað
„Mér fannst eins og þeir væru að reyna að hræða okkur frá upphafi leiks, svo ég gef leikmönnunum mikið hrós fyrir að halda ró sinni, þetta hefði getað endað með gulum og rauðum spjöldum," sagði Heimir.
Írland var yfir í hálfleik eftir vítaspyrnu frá Troy Parrott en fyrirliði Ísraels, Dor Peretz, jafnaði metin tveimur mínútum eftir hlé.
Fyrir fréttamafundinn eftir leik tilkynnti eftirlitsmaður UEFA að aðeins mætti spyrja spurninga sem beindust að leiknum. Upp úr sauð á blaðamannafundi Írlands á laugardaginn þegar ísraelskur blaðamaður sakaði leikmenn Írlands um kynþáttafordóma.
Umræddur blaðamaður var annar tveggja ísraelskra fjölmiðlamanna sem UEFA útilokaði frá blaðamannafundinum eftir leikinn vegna pólitískra spurninga sem þeir lögðu fyrir Hallgrímsson.

Ireland fitness coach Damien Doyle was allegedly spat on by an Israeli player at half-time, according to reports in the stadium in Serbia.
— Anthony Joseph (@AnthonyRJoseph) October 4, 2026
The Irish media are reporting that the incident took place as the players and staff made their way down the tunnel.
@SkySportsNews has contacted the FAI and UEFA. https://t.co/qcFJM0I1FM

Mynd: EPA