Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 07. febrúar 2023 17:30
Elvar Geir Magnússon
Man Utd sagt undirbúa risatilboð í Osimhen
Victor Osimhen.
Victor Osimhen.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar segja að Manchester United sé tilbúið að jafna metupphæðina sem Chelsea greiddi fyrir Enzo Fernandez og bjóða 107 milljónir punda í Victor Osimhen, sóknarmann Napoli.

Osimhen hefur verið stórkostlegur með Napoli og er markahæsti leikmaður ítölsku A-deildarinnar.

Hann skoraði tvö glæsileg mörk í 3-0 sigri gegn Spezia á sunnudag en Napoli er með þrettán stiga forystu í ítölsku A-deildinni.

Manchester United þarf að bæta við sig sóknarmanni en Erik ten Hag hefur þurft að treysta á hinn meiðslahrjáða Anthony Martial og lánsmanninn Wout Weghorst. Sagt er að United sé tilbúið að selja Martial.

United gæti fengið samkeppni frá Chelsea um hinn 24 ára gamla Osimhen en Chelsea hefur verið að nota Kai Havertz sem falska níu.
Athugasemdir
banner
banner