07.03.21 - 13:51
Aksentije Milisic
England: Boltinn vildi ekki inn á The Hawthorns

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
WBA 0-0 Newcastle
Fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið en þar var um alvöru fallbaráttuslag að ræða. WBA og Newcastle mættust þá á The Hawthorns.
Gestirnir frá Newcastle byrjuðu betur og komust í nokkur hálffæri í upphafi leiks. Eftir því sem leið á leikinn vann WBA sig þó vel inn í leikinn og átti svo sannarlega sín færi.
Uppskriftin var svipuð í síðari hálfleik. Liðin skiptust á að sækja og mátti sjá að það var mikið undir í þessum leik. Markmenn beggja liða þurftu að taka á honum stóra sínum í þessum leik og stóðu sig vel.
Inn vildi boltinn hins vegar ekki og því varð niðurstaðan markalaus jafntefli í þessum leik. Slæm úrslit fyrir WBA en liðið er núna átta stigum á eftir Brighton sem er í 17. sæti deildarinnar. Brighton á einn leik til góða á WBA.
Newcastle er í 16. sæti með 27 stig.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |