Fotbolti.net
07.04.21 - 19:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Myndband: Vallaraðstæður aðstoðuðu vítaskyttuna

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Canon

Mynd: Off The Post

Vallaraðstæður á AGC Arena Na Stinadlech í Teplice aðstoðuðu heldur betur Laco Takacs þegar hann tók vítaspyrnu fyrir Mlada Boleslav í dag.

Mlada og Teplice mættust í bikarnum og á 51. mínútu leiksins fengu gestirnir vítaspyrnu. Á punktinn fór Laco og skoraði.

Eins og sjá má í myndbandinu hjálpuðu vallaraðstæður því boltinn skaust upp á við vegna þess að skemmd var í vellinum. Laco tók spyrnuna meðfram jörðinni en á miðri leið skaust boltinn upp og markvörður Teplice átti ekki möguleika að verja.

Það kom þó ekki að sök fyrir Teplice sem vann leikinn 2-1.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.