Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 21:11
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin: Bayern vann á Bernabeu - Dýrmætt mark Havertz í uppbótartíma
Arsenal vann í Portúgal
Arsenal vann í Portúgal
Mynd: EPA
Harry Kane skoraði stórkostlegt mark í sigri á Real Madrid
Harry Kane skoraði stórkostlegt mark í sigri á Real Madrid
Mynd: EPA
Bayern München vann 2-1 sigur á Real Madrid í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabeu í kvöld og fer því með fínasta veganesti til München. Arsenal vann dramatískan 1-0 sigur á Sporting í Lissabon í Portúgal.

Bæjarar hafa verið hættulegasta lið Evrópu á þessari leiktíð og náðu að valda Madrídingum alls konar vandræðum en hinn fertugi Manuel Neuer var líka traustur þegar Bayern þurfti á honum að halda.

Dayot Upamecano fékk fyrsta dauðafæri leiksins á 9. mínútu er Harry Kane kom boltanum á hann í teignum en Madrídingar björguðu á línu frá Upamecano sem átti að gera betur.

Kylian Mbappe fékk nokkra sénsa hinum megin en Neuer var öruggur í sínum aðgerðum.

Á 41. mínútu kom fyrsta mark leiksins. Serge Gnabry stakk boltanum inn á Luis Díaz sem gerði 23. mark sitt á tímabilinu.

Staðan í hálfleik 1-0 fyrir gestunum sem bættu við öðru í upphafi síðari hálfleiks. Bæjarar unnu boltann á miðjunni, komu honum út á Michael Olise sem átti sendingu út á Kane sem skoraði með hnitmiðuðu skoti í hægra hornið.

Real fékk nokkur dauðafæri í kjölfarið. Vini Jr slapp einn á móti Neuer en setti boltann í hliðarnetið og þá setti Kylian Mbappe boltann framhjá úr ákjósanlegu færi en þó vel gert hjá Neuer sem steig út og gerði sig breiðan.

Frakkinn lagaði miðið og sex mínútum síðar minnkaði hann muninn. Hann getur þakkað Trent Alexander-Arnold fyrir það sem átti konfektsendingu á fjærstöngina og eina sem Mbappe þurfti að gera var að hitta boltann, sem hann auðvitað gerði.

Madrídingar áttu ágætis leik og sköpuðu sér færi en Neuer var munurinn á milli liðanna. UEFA valdi hann síðan besta mann leiksins.

Bæjarar treysta á að hann verði áfram í essinu sínu þegar liðin mætast í síðari leiknum á Allianz í næstu viku.

Havertz hetjan í Portúgal

Arsenal marði 1-0 sigur á Sporting í Lissabon í Portúgal.

Portúgalarnir voru hressir í byrjun leiks og voru þeir nálægt að taka forystuna á 6. mínútu er Ousmane Diomande átti sturlaða sendingu í gegn á Max Araujo sem lét vaða en David Raya varði boltann meistaralega í þverslá.

Noni Madueke var ekki langt frá því að skora beint úr horni um það bil átta mínútum síðar en boltinn fór í þverslá og þaðan út í teiginn á Martin Ödegaard sem skaut boltanum rétt framhjá.

Vantaði annars upp á hjá Arsenal í fyrri hálfleiknum og lítið af færum. Viktor Gyökeres náði ekki alveg að koma sér inn í leikinn gegn sínum gömlu félögum og aðeins með níu snertingar.

Í þeim síðari voru Arsenal-menn líklegri og komu boltanum í netið á 63. mínútu er Martin Zubimendi átti þetta stórglæsilega skot fyrir utan teig og í hægra hornið, en Viktor Gyökeres var rangstæður í aðdraganda marksins og það því dæmt af.

Í byrjun uppbótartímans skoraði Kai Havertz markið mikilvæga er hann fékk boltann frá Gabriel Martinelli og setti boltann undir Rui Silva í markinu.

Dýrmætt mark og alveg óhætt að segja að Arsenal sé komið með annan fótinn áfram í undanúrslitin enda erfitt fyrir lið að sækja góð úrslit á Emirates.

Real Madrid 1 - 2 Bayern
0-1 Luis Diaz ('41 )
0-2 Harry Kane ('46 )
1-2 Kylian Mbappe ('74 )

Sporting 0 - 1 Arsenal
0-1 Kai Havertz ('90 )
Slapp
banner