Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. maí 2022 09:10
Fótbolti.net
Besta, Lengjudeildin og Meistaradeildin á X977 í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður farið yfir allt það helsta í boltanum á X977 í dag en útvarpsþátturinn Fótbolti.net er alla laugardaga milli 12 og 14.

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir sviðið á morgun, kryfja leik FH og Vals í Bestu deildinni, hita upp fyrir aðra leiki, skoða fréttir vikunnar, fyrstu leiki Lengjudeildarinnar og fleira.

Kristján Atli, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, verður á línunni og ræðir um þessa mögnuðu undanúrslitaleiki í Meistaradeildinni sem voru í vikunni.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner