Fotbolti.net
07.06.19 - 22:46
Þorgeir Leó Gunnarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Arnar Halls: Við hötum að tapa

Auglýsing
Arnar Hallsson gat brosað eftir leik.

Arnar Hallsson gat brosað eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding tók á móti Magna í kvöld í 6.umferð Inkasso deildar karla. Fyrir leikinn hafði Afturelding tapað þremur leikjum í röð í deildinni og því var sigurinn kærkominn hjá Mosfellingum.

„Sigurin var kærkominn og mér fannst hann sanngjarn. Við höfðum góða stjórn á leiknum og í raun og veru fannst mér uppleggið líka ganga upp. Það er að segja að stýra leiknum, halda boltanum og láta þá elta. Auðvitað var óþægilegt að þeir jöfnuðu 1-1 en mér fannst svona okkar tök á leiknum það föst að mér fannst við ekki vera í hættu að missa þetta frá okkur á neinum tímapunkti" Sagði Arnar.
Þrátt fyrir erfið úrslit að undanförnu segir Arnar að stemningin í hópnum sé góð „Nei, það er náttúrulega leiðinlegt að tapa og við hötum að tapa. En hinsvegar er það þannig að okkar leikmenn hafi fundið það að á þessum köflum sem við vorum í lagi í þessum leikjum þá stóðumst við þessum liðum sem við vorum að spila við fyllilega snúninginn. Á meðan við erum að gera það og gera okkar hluti þá hafa menn trú á verkefninu. Þannig trúin datt aldrei niður" Sagði Arnar.

Nánar er rætt við Arnar í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.