Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen er kominn á spítala eftir að hafa farið í hjartastopp í leik Danmerkur og Úkraínu í kvöld. Dr. Morten Boesen, læknir danska landsliðsins, segir líðan hans góða.
Eriksen hneig niður þegar tæpur hálftími var eftir af leik Danmerkur gegn Úkraínu í kvöld.
Daninn fór í hjartastopp í leik gegn Finnlandi á EM árið 2021 og í kjölfarið var honum komið fyrir bjargráði.
Það reyndist algjör lífsbjörg fyrir Eriksen, enda var það bjargráðurinn sem kom honum til bjargar í kvöld.
„Christian líður vel og gekk sjálfur af vellinum. Ég sé þetta þannig að bjargráðurinn hafi virkað eins og hann á að gera. Eriksen var farinn í augnablik en komst aftur til meðvitundar skömmu síðar og við komumst fljótt í samband við hann. Nú fer hann í frekari rannsóknir á spítalanum til að komast að því hvað olli þessu.
„Við erum í stöðugu sambandi við hann og læknana á spítalanum, en Christian líður vel og bað mig um að senda kveðju á leikmennina og segja þeim að hann sé í lagi,“ sagði Boesen á vefsíðu danska knattspyrnusambandsins.
Leikurinn var flautaður af eftir atvikið en Danir voru 2-1 yfir, þökk sé mörkum frá Patrick Dorgu og Joakim Mæhle.




