Afturelding fær miðjumann úr efstu deild í Belgíu (Staðfest)

Marciano í leik með Maastricht gegn varaliði PSV Eindhoven í B-deild hollenska boltans.

Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Marciano í leik með Maastricht gegn varaliði PSV Eindhoven í B-deild hollenska boltans.

Mynd: Getty Images

Belgíska félagið K.A.S. Eupen, sem leikur í efstu deild í Belgíu, er búið að staðfesta lánssamning.
Miðjumaðurinn Marciano Aziz, sem á fjóra leiki að baki fyrir U18 landslið Belgíu, mun spila með Aftureldingu seinni part sumarsins.
Marciano verður 21 árs í næstu viku og byrjar því dvölina á Íslandi á afmælisfögnuði.
Á síðustu leiktíð lék Marciano með MVV Maastricht í hollensku B-deildinni. Hann var þar á lánssamningi og kom við sögu í 19 leikjum.
Það verður áhugavert að sjá hvernig Marciano fótar sig í Lengjudeildinni þar sem hann gengur í raðir Mosfellinga sem eru í neðri hluta deildarinnar með 13 stig eftir 10 umferðir. Ljóst er að gæðin eru til staðar.
Afturelding hefur fengið miðjumanninn Marciano Aziz á láni frá @kas_eupen í belgísku úrvalsdeildinni. Marciano er tvítugur Belgi en hann spilaði í vetur 19 leiki í hollensku B-deildinni á láni hjá MVV. Marciano á einnig einn leik að baki í belgísku úrvalsdeildinni með Eupen pic.twitter.com/hBMhKHMOlx
— Afturelding (@umfafturelding) July 7, 2022


Mynd: Getty Images
