07.07.22 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Caroline Weir til Real Madrid (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA

Real Madrid er búið að staðfesta komu Caroline Weir á frjálsri sölu eftir fjögur ár hjá enska stórveldinu Manchester City.
Weir er 27 ára gömul landsliðskona Skotlands sem var hjá Arsenal og Liverpool áður en hún gekk í raðir Man City.
Hún er lykilleikmaður í landsliði Skota og lék 124 leiki með City þar sem hún skoraði 38 mörk.
Weir er sókndjarfur miðjumaður og helst fræg fyrir að skora mögnuð mörk gegn erkifjendunum í Manchester United. Tvö markanna voru tilnefnd til Puskas verðlaunanna sem flottasta mark ársins 2020 og 2021.
Weir hefur unnið enska deildabikarinn tvisvar og FA bikarinn þrisvar.
Hún var valinn besti leikmaður skoska landsliðsins 2016 og 2020 og er talin til betri fótboltakvenna í sögu þjóðarinnar.
