Fotbolti.net
07.08.13 - 10:15
Elvar Geir Magnússon

Adel Taarabt til Fulham (Staðfest)

Adel Taarabt til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þá er það klappað og klárt. Adel Taarabt hefur verið lánaður frá QPR til Fulham í eitt ár. QPR féll úr ensku úrvalsdeildinni og var Taarabt ekki tilbúinn að leika í B-deildinni.
„Þetta var erfið ákvörðun fyrir mig en á þessu stigi ferilsins taldi ég að ég þyrfti að spila í hæsta styrkleika. Ég vona að stuðningsmenn QPR sýni ákvörðun minni skilning og vona svo sannarlega að ég snúi einn daginn aftur á Loftus Road,\" segir Taarabt.

Martin Jol, stjóri Fulham, þekkir hinn 24 ára Taarabt vel. Jol var stjóri Tottenham þegar félagið keypti hann sem ungling frá Lens 2007.

Taarabt á 150 deildarleiki að baki á Loftus Road eftir að hafa komið til félagsins 2009 Hann var valinn leikmaður ársins í Championship-deildinni 2010-11 þegar hann hjálpaði QPR að komast upp.

Á síðasta tímabili lék hann 31 leik í úrvalsdeildinni og skoraði fimm mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.