Ísak Bergmann á leið til Þýskalands

Ísak Bergmann Jóhannesson í fyrri leiknum gegn Blikum í forkeppni Meistaradeildar Evrópu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður FCK, er á leið til þýska B-deildarfélagsins Fortuna Düsseldorf en þetta kemur fram í danska miðlinum BT.
Þessi tvítugi miðjumaður hefur lítið fengið að spila undanfarið ár hjá FCK.
Á þessu tímabili hefur hann fengið 44 mínútur í þremur leikjum og ekkert verið með í síðustu tveimur.
Hann var ekki valinn í Meistaradeildarhóp FCK gegn Sparta Prag en blaðamaðurinn Farzam Abolhosseini hjá BT sagði frá því að Ísak væri með tilboð frá þýsku félagi en Orri Rafn Sigurðarson, fréttaritari Fótbolta.net, nafngreindi þá félagið á Twitter og sagði að Ísak væri lentur í Þýskalandi til að ganga frá sínum málum.
Ísak kom til FCK frá Norrköping fyrir tveimur árum og hefur síðan þá spilað 40 leiki í deild en hann hefur þó ekki verið ánægður með spiltíma sinn undanfarið og því ákveðið að leita annað. Ekki kemur fram hvort hann verði keyptur eða fenginn á láni út tímabilið.
Áhugavert skref hjá Skagamanninum en hann verður einn af tveimur Íslendingum sem spila í B-deildinni. Hinn er Hólmbert Aron Friðjónsson, en hann er á mála hjá Holsten Kiel.