Fotbolti.net
07.09.26 - 07:55
Ívan Guðjón Baldursson

Alonso viðurkennir mistök: Notaði Caicedo of snemma

Alonso viðurkennir mistök: Notaði Caicedo of snemma
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso þjálfari Chelsea viðurkennir að hann hafi gert mistök með miðjumanninn öfluga Moisés Caicedo.
Alonso: Vonsviknir að ná ekki í stig
TENGT EFNI

Alonso: Vonsviknir að ná ekki í stig

Caicedo kom inn af bekknum í 4-3 sigri Chelsea gegn Brighton um síðustu helgi en var svo ekki með í hópnum sem tapaði 2-1 á útivelli gegn Englandsmeisturum Arsenal í gær.

„Þetta eru smávægileg meiðsli en í síðustu viku þá gerði ég mistök og lét hann spila alltof snemma. Þess vegna gat hann ekki verið með gegn Arsenal," sagði Alonso eftir tapið í gær. Svipaða sögu er að segja af Levi Colwill sem sat allan tímann á bekknum gegn Arsenal vegna meiðslavandræða, eftir að hafa spilað meirihluta leiksins gegn Brighton.

„Ég vil ekki gera þessi mistök aftur að nota leikmenn áður en þeir hafa náð fullum bata eftir meiðsli. Það er auðvelt að tala um leikmennina sem vantar í liðið eftir tapleik, en ég er ánægður með þá leikmenn sem voru í byrjunarliðinu í dag.

„Við erum að glíma við meiðslavandræði en þannig virkar þessi íþrótt. Mikel Arteta þarf líka að glíma við meiðslavandræði. Auðvitað þurfum við á Levi og Moisés að halda, þeir eru topp leikmenn."


England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea
TENGT EFNI

England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea

Alonso viðurkennir mistök: Notaði Caicedo of snemma
Canon

Mynd: Youtube

Alonso viðurkennir mistök: Notaði Caicedo of snemma
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.