Fotbolti.net
07.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Chelsea bætti markamet

Stuðningsmenn Chelsea gerðu grín að titlaleysi Arsenal í Meistaradeildinni þegar þeir heimsóttu Emirates í gær.

Stuðningsmenn Chelsea gerðu grín að titlaleysi Arsenal í Meistaradeildinni þegar þeir heimsóttu Emirates í gær.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea heimsótti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær og náði forystunni snemma með góðu marki frá Morgan Rogers.
Rogers skoraði á 2. mínútu gegn Englandsmeisturunum og fagnaði hjá hornfánanum að hætti Thierry Henry.

Með þessu marki setti Chelsea nýtt met í úrvalsdeildinni. Chelsea er fyrsta liðið sem skorar mark á innan við fimm mínútum í þremur fyrstu leikjum tímabilsins.

Joao Pedro skoraði á fyrstu mínútu í 2-3 sigri gegn Fulham í fyrstu umferð áður en Roméo Lavia skoraði á fjórðu mínútu í 4-3 sigri gegn Brighton um síðustu helgi.

Leikurinn gegn Arsenal fór ekki jafn vel þar sem meistararnir náðu að koma til baka og sigra 2-1 eftir að hafa lent undir á Emirates.

England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea
TENGT EFNI

England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.