07.09.26 - 10:10
Innkastið
„Eins og að horfa á æfingaleik í gegnum Spiideo myndavél“

Frá Miðgarði í Garðabænum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá útsendingunni úr leik Stjörnunnar og ÍBV.

Mynd: Skjáskot

Frá Miðgarði í Garðabænum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur spilað síðustu tvo heimaleiki sína í Bestu deildinni í íþróttahúsinu Miðgarði. Framkvæmdir við Samsung-völlinn, þar sem verið er að leggja nýtt gervigras, hafa dregist eitthvað á langinn.
Miðgarður uppfyllir ekki kröfur en KSÍ hefur gefið Stjörnunni undanþágu til að spila í íþróttahúsinu í Garðabæ á meðan verið er að leggja gervigrasið.
Í gær gerði Stjarnan 2-2 jafntefli gegn ÍBV í húsinu og fer Garðabæjarliðið því í neðri hlutann nú þegar deildin skiptist upp.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 0 Víkingur R.
„Vonandi var þetta síðasti leikurinn í Bestu deildinni sem verður spilaður í Miðgarði. Þetta er ekki eðlilega þreytt. Sjónarhornið í sjónvarpsútsendingunni er eins og að horfa á æfingaleik í gegnum Spiideo myndavél. Myndavélin er neðarlega og þetta er sjoppulegt fyrir vörumerkið Besta deildin, það er vel pirrandi að það sé verið að spila þarna," segir Elvar Geir í Innkastinu.
„Gjörsamlega fáránlegt. Ég skil ekki af hverju þetta er ekki bara spilað á Þróttarvelli eða Fylkisvelli, það er fullt af flottum völlum sem er hægt að nota. Það er ekki eins og það sé verið að fjölmenna þarna af Stjörnufólki," segir Valur Gunnarsson í þættinum.
„Gjörsamlega fáránlegt. Ég skil ekki af hverju þetta er ekki bara spilað á Þróttarvelli eða Fylkisvelli, það er fullt af flottum völlum sem er hægt að nota. Það er ekki eins og það sé verið að fjölmenna þarna af Stjörnufólki," segir Valur Gunnarsson í þættinum.

Frá útsendingunni úr leik Stjörnunnar og ÍBV.

Mynd: Skjáskot
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 3 | KR | 22 | +25 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 22 | -2 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |
| 7 | Stjarnan | 22 | -8 | 28 |
| 8 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 9 | FH | 22 | -12 | 21 |
| 10 | Þór | 22 | -28 | 21 |
| 11 | KA | 22 | -13 | 20 |
| 12 | ÍBV | 22 | -13 | 18 |