Fotbolti.net
07.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lyon reyndi að krækja í Benzema

Lyon reyndi að krækja í Benzema
Canon

Mynd: Al Hilal

Franska félagið Lyon reyndi að krækja í 38 ára Karim Benzema á frjálsri sölu í sumar en mistókst.
Benzema gæti lagt skóna á hilluna
TENGT EFNI

Benzema gæti lagt skóna á hilluna

Benzema er án félags eftir að hafa leikið fyrir Al-Ittihad og Al-Hilal í efstu deild í Sádi-Arabíu síðustu þrjú ár, en hann má ekki skipta til annars félags utan Arabíu.

Frakkinn goðsagnakenndi er nefnilega samningsbundinn sádi-arabísku deildinni til 2030. Hann er sendiherra fyrir deildina og má ekki skrifa undir hjá félagsliði utan Sádi-Arabíu án þess að segja upp sendiherrasamningnum.

Benzema skoraði 25 mörk og gaf 5 stoðsendingar í 34 leikjum á síðustu leiktíð. Hann hefur verið meðal bestu leikmanna sádi-arabísku deildarinnar undanfarin ár og mun líklega halda áfram að spila í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.