Fotbolti.net
07.09.26 - 14:09
Elvar Geir Magnússon

Man Utd sætti sig við meðalmennsku og það sé móðgun við stuðningsmenn

Michael Carrick, stjóri Manchester United.

Michael Carrick, stjóri Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Jeremy Cross, íþróttafréttamaður hjá Mirror, gagnrýnir Michael Carrick stjóra Manchester United. Eftir að hafa gert jafntefli við Everton í gær sagði Carrick að þetta væru ekki svo slæm úrslit.

„Það er veikt hjá Michael Carrick að reyna að verja þetta. Jafnvel móðgandi fyrir stuðningsmenn," segir Cross en Manchester United komst tvisvar yfir en 2-2 jafntefli varð niðurstaðan.
Carrick: Þetta er ekki svo slæm byrjun
TENGT EFNI

Carrick: Þetta er ekki svo slæm byrjun

„Það eru þrír leikir liðnir af tímabilinu og ekki hægt að horfa framhjá því að það eru fleiri neikvæðar en jákvæðar hliðar á liði Carrick. United er í neðri helmingi deildarinnar."

„Þeir hafa unnið einn deildarleik, tapað gegn nýliðum Hull City og misstu af tveimur stigum til viðbótar gegn Everton. Í öllum þremur leikjunum hefur United fengið á sig tvö mörk."

„Carrick á enn inneign eftir glæsilega sex mánuði sem bráðabirgðastjóri áður en hann fékk starfið til frambúðar. En það er þegar byrjað að eyðast af þeirri inneign. Það lítur út fyrir að United muni halda áfram að gera það sem þeir hafa gert alltof lengi, sætta sig við meðalmennsku."
Man Utd sætti sig við meðalmennsku og það sé móðgun við stuðningsmenn
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.