07.09.26 - 14:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þetta var bara tímasóun"

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík fagnar marki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik hjá Fram.

„Ef við værum með fjölmiðlafulltrúa í þessu félagi þá væri hann örugglega búinn að segja mér að segja 'no comment' á það," sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, er hann var spurður út í kæru sem félagið fékk á sig á dögunum.
Fótbolti.net sagði frá því fyrir viku síðan að á borði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ væri kæra frá Fram vegna ólöglegrar skýrslu Grindavíkur/Njarðvíkur í leik liðanna í Bestu deild kvenna fyrir tæpum tveimur vikum síðan.

TENGT EFNI
Gylfi: Aldrei verið jafn hamingjusamur eftir þriggja marka tap
G/N vann leikinn, 4-0 urðu lokatölur, en Fram krafðist þess að liðinu yrði dæmdur sigur þar sem G/N var með níu varamenn en uppfyllti ekki þá kröfu að að lágmarki tveir þeirra væru á 2. flokks aldri. Tveir varamenn G/N skoruðu í leiknum, þriðja og fjórða mark leiksins.
Aga- og úrskurðarnefnd mat mistökin ekki þess eðlis að þau væru vísvitandi og því standa úrslitin óhögguð. Möguleiki er þó á því að G/N muni fá sekt vegna málsins.
„Þetta var ekki reist á neinum rökum," sagði Gylfi eftir 1-4 tap gegn Val í gær. „Við getum alveg kært Val eftir þennan leik og óskað eftir 3-0 sigri fyrir að vera með of fáar legghlífar eða eitthvað. Við getum alveg fundið einhverja leið til að kæra og beðið um 3-0. En það þurfa að vera einhver rök. Ég held að kærumálið segi sig sjálft, hvernig dómurinn var kveðinn upp. Þetta var bara tímasóun."
„Það er óumdeilt hvernig þetta var, bara mannleg mistök. Mér finnst skrítið, lélegt og hallærislegt að vera að saka félagið um að gera eitthvað af ásetningi. Það er ekki á rökum reist eins og niðurstaðan sýnir klárlega. Þetta voru mistök en þau eru skiljanleg og eðlileg fyrir alla sem nota heilann til að hugsa."