Fotbolti.net
07.09.26 - 10:27
Innkastið

„Var varla inni í vítateignum eftir að hann kom inná“

Arnar Freyr Ólafsson kom inná í hálfleik í gær.

Arnar Freyr Ólafsson kom inná í hálfleik í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA vann 3-1 sigur gegn KR í Bestu deildinni í gær en athygli vakti að KR-ingar gerðu markvarðaskipti í hálfleik. Arnar Freyr Ólafsson kom inn í markið í stað Halldórs Snæs Georgssonar.

„Ég hugsaði fyrst hvort Óskar væri að setja inn auka 'sóknarmann' með Arnari því hann var varla inni í vítateignum í leiknum eftir að hann kom inn á!" sagði Valur Gunnarsson Innkastinu.

Meiðsli voru hinsvegar ástæðan fyrir skiptingunni og Halldór haltraði framhjá fréttamanni Fótbolta.net eftir leikinn.
Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla
TENGT EFNI

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla

Lestu um leikinn: ÍA 3 - 1 KR
„Ég veit ekki hver staðan er á Dóra, það verður bara að koma í ljós þegar líða fer á vikuna. Arnar hefur verið að æfa í þrjár til fjórar vikur núna og hefur verið þolinmóður að bíða eftir því að fá mínútur. Frábært að sjá hann á vellinum aftur," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir leikinn.

Arnar byrjaði tímabilið sem aðalmarkvörður KR en meiddist strax í fyrstu umferð og hefur Halldór staðið vaktina í rammanum í flestum leikjum síðan.
Halldór Snær Georgsson fór meiddur af velli.

Halldór Snær Georgsson fór meiddur af velli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.