Fotbolti.net
07.10.20 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Yorke segir að Solskjær eigi ekki að sýna leikmönnum neina vægð

Dwight Yorke.

Dwight Yorke.

Canon

Mynd: Getty Images

Ole Gunnar Solskjær á ekki að sýna leikmönnum Manchester United neina vægð. Þetta segir Dwight Yorke, fyrrum sóknarmaður United.

United fékk skell gegn Tottenham um síðustu helgi en liðið fer brösuglega af stað á nýju tímabili.
„Stjórinn þarf að trúa því að hann geti komið inn með kraftinn sem þarf. Liðinu vantar leiðtoga, við þurfum að fá sigurvegara út á völlinn," segir Yorke.

„Það þarf að finna leið til að öðlast söguleika. Ég er ekki viss um að Solskjær taki þetta á hörkunni. Hann fer aðrar leiðir en Roy Keane myndi gera. Hann er með öðruvísi þjálfunaraðferð en ég vænti þess að hann láti menn samt heyra það."

„Solskjær verður að tala hreint út við menn. Ég er viss um að stór orð verði látin falla. Við fáum ekki að sjá hvernig Ole er bak við tjöldin en ég er viss um að hann geti sýnt hörku."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.