Sú umræða hefur verið á lofti að Antoine Griezmann gangi illa að stimpla sig inn í lið Barcelona.
Lionel Messi og Luis Suarez hafa hingað til ekki tengt vel við franska landsliðsmanninn en Griezmann hefur oft litið einmana út úti á vinstri vængnum á meðan hinir leika listir sínar.
Lionel Messi og Luis Suarez hafa hingað til ekki tengt vel við franska landsliðsmanninn en Griezmann hefur oft litið einmana út úti á vinstri vængnum á meðan hinir leika listir sínar.
Lionel Messi fékk í gær kjörið tækifæri til að búa til dauðafæri fyrir Griezmann en ákvað að taka skotið sjálfur við vítateigslínuna, skotið hafnað í slánni og Messi hefur verið gagnrýndur fyrir ákvörðunina.
Hér að neðan má sjá mynd af stöðunni sem Griezmann og Messi voru í þegar Messi skaut. Yfirskriftin á myndinni segir: „Ef Griezmann hefði verið Suarez vitum við öll hvað Messi hefði gert.
If Griezmann was Suarez here,we all know what messi would do.#BarcaSlavia pic.twitter.com/vSotmUwN5a
— Squidward 🦑 (@_____squidward) November 5, 2019
Athugasemdir