Raheem Sterling og félagar í Manchester City eiga nágrannaslag gegn Manchester United í dag.
Tölfræði um Sterling birtist á netheimum vegna leiksins þar sem kemur fram að stórstjörnunni hefur ekki tekist að skora gegn Rauðu djöflunum í síðustu 16 tilraunum.
Man Utd er eina liðið sem Sterling hefur mætt oftar en 7 sinnum án þess að skora gegn.
„Þetta er vakning fyrir mig, ég ætla að reyna að skora í þessum leik. Ég mun taka fleiri skot en vanalega," sagði Sterling þegar fréttamaður Sky Sports spurði hann út í slakt gengi gegn Man Utd.
Sterling er markahæsti maður City í haust, með 15 mörk í öllum keppnum.
Athugasemdir