Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 07. desember 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Gerrard örugglega bestur á æfingasvæði Aston Villa"
Mynd: Aston Villa
Steven Gerrard hefur byrjað vel sem stjóri Aston Villa. Liðið hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjunum undir hans stjórn.

Næsti leikur er gegn Liverpool á Anfield á laugardaginn en Gerrard er goðsögn hjá Liverpool þar sem hann spilaði 710 leiki og skoraði 185 mörk.

Mark Lawrenson fyrrum leikmaður Liverpool tjáði sig um komu Gerrard til Aston Villa.

„Leikmennirnir munu tengja við hann, ég skal segja þér það að hann er örugglega besti leikmaðurinn á æfingasvæðinu. Stundum er það mjög gott því leikmenn horfa til hans og hugsa með sér 'Vá hvað hann er góður.' Hann setur standardinn fyrir þá."

Aston Villa hefur ekki unnið á Anfield síðan árið 2014 en þá var Gerrard í liði Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner