Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 07. desember 2021 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hazard í hópnum gegn Inter - Enginn Benzema
Mynd: EPA
Eden Hazard er í hópnum hjá Real Madrid sem mætir Inter Milan í Meistaradeildinni í kvöld.

Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá honum síðan hann gekk til liðs við Real Madrid frá Chelsea árið 2019. Hann hefur aðeins tekið þátt í fjórum leikjum á þessari leiktíð.

Hann hefur misst af síðustu fjórum leikjunum vegna vöðvameiðsla. Hann hefur nú snúið aftur og er í 23 manna hópnum sem mætir Inter í kvöld.

Það er hinsvegar skellur fyrir Madridar liðið að Karim Benzema er ekki leikfær. Hann meiddist aftan í læri gegn Real Sociedad um helgina.

Sjá einnig:
Benzema líklega ekki með gegn Inter


Athugasemdir
banner
banner
banner