Þessir voru bestir í 16-liða úrslitum HM í Katar

<B>HM hringborðið</b> - Karnival í Katar og Spánn fær ekki að vera með
<b>HM hringborðið</b> - Hey Jude og töframáttur Messi og Mbappe

Denzel Dumfries, Holland - Vængbakvörður Inter fór á kostum í 3-1 sigri gegn Bandaríkjunum. Tvær stoðsendingar og eitt mark. Leikkerfi Louis van Gaal svínvirkaði.

Mynd: EPA

Lionel Messi, Argentínu - Leiddi þjóð sína til sigurs gegn Ástralíu. Skoraði fyrra mark Argentínu á frábæran hátt.

Mynd: EPA

Kylian Mbappe, Frakkland - Fór algjörlega á kostum og var óstöðvandi í 3-1 sigri gegn Póllandi. Stoðsending og tvö glæsileg mörk.

Mynd: Getty Images

Jude Bellingham, England - Verðmiðinn hækkar og hækkar. Bellingham var sífellt að búa til vandræði fyrir Senegal en enska landsliðið vann á endanum 3-0 sigur.

Mynd: Getty Images

Dominik Livakovic, Króatía - Markvörður Dinamo Zagreb varði þrjár vítaspyrnur í vítakeppninni gegn Japan.

Mynd: Getty Images

Vinicius Junior, Brasilía - Brassarnir buðu upp á sóknarveislu gegn Suður-Kóreu og Vini Jr. var geggjaður. Skoraði fyrsta markið og átti einnig stoðsendingu.

Mynd: Getty Images

Sofyan Amrabat, Marokkó - Kóngur í ríki sínu á miðsvæðinu þegar Marokkó hélt Spáni algjörlega í skefjum. Marokkó vann í vítakeppni og Amrabat, sem spilar fyrir Fiorentina, er sterklega orðaður við ensk úrvalsdeildarfélög.

Mynd: Getty Images

Goncalo Ramos, Portúgal - Ný stjarna fæddist í 6-1 sigri Portúgals gegn Sviss. Ramos, sem er 21 árs leikmaður Benfica, tók óvænt stöðu Ronaldo í liðinu og skoraði þrennu.

Mynd: Getty Images




