Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   mið 08. janúar 2020 17:55
Magnús Már Einarsson
Guðlaugur Victor einn besti miðjumaðurinn í þýsku B-deildinni
Guðlaugur Victor Pálsson er einn besti varnarsinnaði miðjumaðurinn í þýsku B-deildinni á þessu tímabili að mati Kicker.

Guðlaugur Victor leikur með Darmstadt sem er í 12. sæti deildarinnar.

Vetrarfrí er í deildinni í augnablikinu en boltinn byrjar aftur að rúlla þar í lok mánaðarins.

Á síðasta ári vann Guðlaugur Victor sér sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins en þar spilar hann sem hægri bakvörður.


Athugasemdir
banner
banner