Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 08. janúar 2020 21:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pogba: Endurhæfingin byrjar núna - Kem sterkur til baka
Mynd: Getty Images
Paul Pogba er búinn í aðgerð á ökkla. Pogba hefur verið mikið frá vegna meiðsla á leiktíðinni og einungis spilað átta leik í öllum keppnum á tímabilinu og síðasti heili leikurinn sem hann spilaði var undir lok september gegn Arsenal.

Hann kom inn á gegn Watford í desember og spilaði einnig gegn Newcastle í leiknum sem fylgdi í kjölfarið.

Pogba birti á samfélagsmiðlum myndband af sér í hjólastól þar sem hann sagði að endurhæfingin hæfist núna.

Myndbandið má sjá hér að neðan, þar segir Pogba einnig að hann muni koma sterkur til baka.


Athugasemdir
banner
banner