Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   sun 08. janúar 2023 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd gæti verið refsað fyrir níðsöngvana um Lampard

Enska knattspyrnusambandið hefur hrint af stað rannsókn vegna hómófóbískra níðsöngva sem stuðningsmenn Manchester United sungu um Frank Lampard.


Man Utd sló Everton úr leik í FA bikarnum með 3-1 sigri og sungu stuðningsmenn Rauðu djöflanna um Lampard, sem er við stjórnvölinn hjá Everton.

Man Utd hefur beðist afsökunar á níðsöngvum stuðningsmanna og getur búist við að fá sekt eða einhvers konar refsingu fyrir þetta stjórnleysi stuðningsmanna.

„Við fyrirlítum notkunina á 'rent boy' slangrinu og ætlum að eyða því úr fótboltaheiminum. Við erum í nánu samstarfi við saksóknara og lögregluyfirvöld vegna notkunar á þessu slangri," segir meðal annars í yfirlýsingu frá enska knattspyrnusambandinu sem ætlar ekki að taka á þeim stuðningsmönnum sem gerast sekir um ósæmandi hegðun með neinum vettlingatökum.

„Við stöndum áfram saman gegn öllum tegundum mismununar og erum að gera allt í okkar valdi til að tryggja að öllum áhorfendum geti liðið vel á vellinum án þess að eiga hættu á að verða fyrir handahófskenndu níði."

Rainbow Devils, LGBTQ+ stuðningsmannahópur Man Utd, hvetur félagið til að finna þá aðila sem sungu þessa níðsöngva og refsa þeim.

Sjá einnig:
Stuðningsmenn Man Utd sungu hómófóbíska söngva um Lampard
Manchester United harmar söngva stuðningsmanna sinna


Athugasemdir