Spánn í dag - Barca á stórleik í Madríd


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Barcelona er í góðri stöðu í toppbaráttu spænsku deildarinnar eftir að ríkjandi meistarar Real Madrid töpuðu óvænt á útivelli gegn Villarreal í gær.
Barca og Real eru jöfn á stigum á toppinum en Börsungar eiga leik til góða sem gæti reynst mikilvægur. Sá leikur fer fram í kvöld þegar Börsungar heimsækja Atletico alla leið til Madrídar.
Það má því búast við spennandi stórslag þegar Atletico fær Barca í heimsókn í kvöld, en Atletico átti slakan fyrri hluta tímabils og er í fjórða sæti sem stendur, með 27 stig úr 15 umferðum.
Það er mikil spenna á ýmsum vígstöðvum þar sem dagurinn hefst í hádeginu á því að Real Sociedad, sem situr í þriðja sæti, þarf sigur á útivelli gegn Almeria til að halda einhverskonar pressu á toppliðunum.
Rayo Vallecano og Real Betis eigast svo við í Evrópubaráttunni áður en Sevilla og Getafe mætast í óviðbúnum fallbaráttuslag, þar sem Sevilla er óvænt í næstneðsta sæti með 12 stig eftir 15 umferðir.
Leikir dagsins:
13:00 Almeria - Real Sociedad
15:15 Rayo Vallecano - Real Betis
17:30 Sevilla - Getafe
20:00 Atletico Madrid - Barcelona


Mynd: EPA
La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 11 | +34 | 30 |
| 2 | Atletico Madrid | 11 | +14 | 28 |
| 3 | Real Madrid | 11 | +18 | 27 |
| 4 | Betis | 11 | +3 | 23 |
| 5 | Real Sociedad | 11 | 0 | 19 |
| 6 | Sevilla | 11 | -2 | 17 |
| 7 | Athletic | 10 | +4 | 15 |
| 8 | Deportivo | 11 | +1 | 14 |
| 9 | Villarreal | 11 | 0 | 12 |
| 10 | Celta | 11 | 0 | 12 |
| 11 | Alaves | 11 | -2 | 12 |
| 12 | Vallecano | 10 | -5 | 12 |
| 13 | Getafe | 11 | -8 | 12 |
| 14 | Espanyol | 11 | -1 | 11 |
| 15 | Osasuna | 11 | -11 | 11 |
| 16 | Racing Santander | 11 | -14 | 11 |
| 17 | Elche | 11 | -4 | 10 |
| 18 | Levante | 11 | -5 | 10 |
| 19 | Valencia | 11 | -9 | 9 |
| 20 | Malaga | 11 | -13 | 5 |
