Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 08. febrúar 2023 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Gnonto skoraði á fyrstu mínútu
Mynd: EPA

Viðureign Manchester United og Leeds United er í fullum gangi og er hægt að finna beina útsendingu á sportstöð Símans.


Leeds er einu marki yfir í hálfleik eftir að Ítalinn ungi Wilfried Gnonto gerði flott mark snemma leiks.

Gnonto skoraði eftir tæpa eina mínútu eftir að Leeds vann boltann af Bruno Fernandes hátt uppi á vellinum.

Leeds var sterkari aðilinn fyrsta stundarfjórðunginn en svo tóku heimamenn völdin á vellinum og komust nálægt því að jafna.

Alejandro Garnacho komst næst því þegar hann lék á Illan Meslier en skoti hans var bjargað með skalla af marklínunni.

Sjáðu opnunarmark Willy Gnonto


Athugasemdir
banner
banner
banner