Fotbolti.net
08.03.21 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Subway

England í dag - Mikilvægir leikir í Meistaradeildarbaráttunni

Chelsea hefur ekki enn tapað leik frá því að Tuchel tók við.

Chelsea hefur ekki enn tapað leik frá því að Tuchel tók við.

Canon

Mynd: Getty Images

Það eru tveir leikir í ensku úrvalsdeildinni þennan mánudaginn.
Fyrri leikur dagsins hefst klukkan 18:00 en þá mætast Chelsea og Everton. Þetta er ansi mikilvægur fyrir bæði lið í Meistaradeildarbaráttunni.

Chelsea hefur ekki enn tapað frá því að Thomas Tuchel tók við en liðið er núna í fjórða sæti með einu stigi meira en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar Everton sem sitja í fimmta sæti.

Klukkan 20:00 mætast svo West Ham og Leeds. West Ham er í sjötta sæti, tveimur stigum á eftir Chelsea. West Ham á leik til góða á Chelsea. Leeds er sem stendur í 11. sæti.

Báðir leikir dagsins eru sýndir í beinni útsendingu á Síminn Sport.

mánudagur 8. mars
18:00 Chelsea - Everton
20:00 West Ham - Leeds

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.