Fotbolti.net
08.04.19 - 08:10
Elvar Geir Magnússon

Lið vikunnar í enska - Henderson í góðum félagsskap

Eins og oft áður þá er lið vikunnar í enska úr smiðju Garth Crooks hjá BBC. Liverpool vann flottan sigur gegn Southampton á föstudaginn og keppinautarnir í Manchester City komust í úrslitaleik bikarsins.
Ederson (Manchester City) - Markvörðurinn tók virkan þátt í spilamennsku Man City í 1-0 sigrinum gegn Brighton. Var eins og auka leikmaður í varnarlínunni!

Canon

Mynd: Getty Images

Aaron Wan-Bissaka (Crystal Palace) - Bakvörðurinn ungi heldur áfram að blómstra en Palace vann 1-0 útisigur gegn Newcastle.

Phil Jagielka (Everton) - Óvænt hetja. Skoraði eina markið í öflugum sigri gegn Arsenal.

Virgil van Dijk (Liverpool) - Real Madrid og Barcelona hljóta að velta því fyrir sér hvað hollenski varnarmaðurinn kosti.

James Milner (Liverpool) - Vissir þú að aðeins Roberto Firmino hefur spilað fleiri úrvalsdeildarleiki undir stjórn Jurgen Klopp en James Milner?

James Maddison (Leicester) - Skoraði í 4-1 sigri gegn Huddersfield. Fór illa með mótherja sína í leiknum.

Luka Milivojevic (Crystal Palace) - Skoraði eina markið gegn Newcastle af vítapunktinum. Ein allra öruggasta vítaskytta plánetunnar.

Jordan Henderson (Liverpool) - Þaggaði niður í gagnrýnisröddum með því að koma með mark og stoðsendingu af bekknum.

Mohamed Salah (Liverpool) - Reif sig úr að ofan þegar hann skoraði mark 50 í 69 úrvalsdeildarleikjum fyrir Liverpool.

Gerard Deulofeu (Watford) - Spilamennska Spánverjans er sveiflukennd en hann var geggjaður í sigri gegn Úlfunum í undanúrslitum bikarsins. Fyrra mark hans í leiknum var konfekt.

Jamie Vardy (Leicester) - Brendan Rodgers hefur komið honum aftur í markagírinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.