Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 08. apríl 2021 23:00
Aksentije Milisic
Sjáðu frábæra afgreiðslu í sigurmarki Roma gegn Ajax
Ibanez var hetjan í kvöld.
Ibanez var hetjan í kvöld.
Mynd: Getty Images
Ajax og Roma áttust við í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld en spilað var í Amsterdam.

Ajax byrjaði betur og komst yfir. Dusan Tadic gat komið Ajax í tveggja marka forystu en honum brást bogalistinn af vítapunktinum. Fyrir þessa vítaspyrnu hafði hann skorað úr sautján í röð.

Þetta átti eftir að koma í bakið á Ajax en Roma svaraði með tveimur mörkum. Lorenzo Pellegrini jafnaði metin úr aukaspyrnu og það var síðan varnarmaðurinn Roger Ibanez sem tryggði Roma gífurlega sterkan útisigur.

Rómverjar fengu hornspyrnu þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Boltinn barst á varnarmanninn Ibanez sem tók vel á móti knettinum og þrumaði honum á lofti upp í þaknetið.

Frábærlega klárað hjá Ibanez og mætti halda af þessari afgreiðslu að dæma að hann væri sóknarmaður. Þetta laglega mark má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner