Fotbolti.net
08.05.22 - 13:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Besta leiðin til að heiðra Dallas er að ná í þrjú stig"

„Besta leiðin til að heiðra Dallas er að ná í þrjú stig"
Canon

Mynd: Getty Images

Stuart Dallas leikmaður Leeds meiddist illa þegar hann fótbrotnaði í leik gegn Manchester City um síðustu helgi.

Leeds er þessa stundina að spila gegn Arsenal á Emirates en leikmenn Leeds hituðu upp í bolum merktum Dallas og stuðningsmenn liðsins sem eru mættir til London eru einnig í bolunum.

„Þetta er fjölskyldufélag. Við elskum Dallas, hann skiptir okkur miklu máli. Ég spjallaði við hann í gær, honum leið vel, hann var á leið heim til Leeds frá London þar sem hann var í aðgerð," sagði Jesse Marsch stjóri Leeds í viðtali við Sky Sports fyrir leikinn.

Leeds er í fallbaráttu en Marsch er staðráðinn í að ná í þrjú stig í dag.

„Það er frábært að við erum í félagi sem sýnir öllum svona mikla ást og umhyggju. Besta leiðin til að heiðra hann er að standa sig vel og ná í þrjú stig í dag," sagði Marsch.

„Besta leiðin til að heiðra Dallas er að ná í þrjú stig"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.