Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 08. maí 2022 11:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Erfið ákvörðun að velja Árna Snæ - „Eigum tvo frábæra markmenn"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Marinó Einarsson markvörður ÍA varði mark liðsins í 13 leikjum í deildinni síðasta sumar eftir að Árni Snær Ólafsson meiddist. Árni Marinó er tvítugur en hann vakti athygli fyrir góða frammistöðu.


Lestu um leikinn: ÍA 1 -  5 Breiðablik

Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA ákvað að velja Árna Snæ í markið aftur í upphafi tímabilsins. Hann var spurður út í þá ákvörðun eftir leik liðsins gegn Breiðabliki í gær.

„Við eigum tvo frábæra markmenn og það er eins og með fleiri ákvarðanir að velja þetta lið, það er samkeppni um stöður í liðinu og það er alltaf erfitt,"

Árni Marinó gerði tilkall í u21 árs landsliðið en hann var í æfingahóp liðsins fyrir áramót.

„Eins og ég segi, þar ertu með tvo góða markmenn sem bítast um stöðu, það er samkeppni í liðinu og það er erfitt að velja á milli manna í þessu liði," sagði Jón Þór að lokum.


„Fengum í staðinn þriðja markið á okkur og það gat ekkert farið verr"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner