Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 08. maí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Reynir nýtti sér vindinn og skoraði beint úr horni
Lengjudeildin
Reynir Haraldsson
Reynir Haraldsson
Mynd: Baldvin Berndsen
Reynir Haraldsson skoraði draumamark í fyrsta leik Íslandsmótsins með Fjölni í 3-0 sigri liðsins á Þrótti V í gær.

Lestu um leikinn: Þróttur V. 0 -  3 Fjölnir

Fjölnismenn náðu tveggja marka forystu í leiknum í gegnum þá Hákon Inga Jónsson og Viktor Andra Hafþórsson.

Þegar rúmur klukkutímur var búinn af leiknum fengu Fjölnismenn hornspyrnu og var það Reynir sem tók hana. Það var örlítið rok á meðan leik stóð og nýtti Reynir sér vindinn og skoraði beint úr hornspyrnunni.

Þetta var fyrsta mark hans fyrir Fjölni í Lengjudeildinni en hann kom til félagsins frá ÍR fyrir tímabilið. Markið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner