Fotbolti.net
08.06.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Indriði Áki Þorláksson í Val (Staðfest)

Indriði Áki fagnar marki með Leikni.

Indriði Áki fagnar marki með Leikni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn efnilegi Indriði Áki Þorláksson hefur verið kallaður til baka úr láni hjá 1. deildarlið Leiknis í Breiðholti í Val að nýju.
Indriði er fæddur 1995 og vakti athygli í Pepsi-deildinni í fyrra þegar hann skoraði fjögur mörk í sjö leikjum.

Leikmaðurinn hefur vakið athygli erlendra félagsliða og verið í skoðun hjá Twente í Hollandi.

Hann gekk til liðs við Leikni í maí á láni en hefur nú verið kallaður heim.

Hann var ónotaður varmaður í 1-0 sigrinum á Þrótti í fyrrakvöld.

Samtals spilaði hann fjóra leiki í deild og bikar með Leikni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.