Fotbolti.net
08.06.18 - 21:56
Helgi Fannar Sigurðsson

Gunni Borg: Gríðarlega undarlegur leikur

Auglýsing
Gunnar Borgþórsson

Gunnar Borgþórsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Borgþórsson, þjálfari Selfoss, var skiljanlega hundsvekktur eftir að hans menn töpuðu 5-3 fyrir Haukum á Ásvöllum fyrr í kvöld. Það má segja að leikurinn hafi tapast í fyrri hálfleik en Selfoss var 4-0 undir að honum loknum.

„Þetta var gríðarlega undarlegur leikur, kaflaskiptur. Þetta var ekki góður dagur fyrir okkur,\" sagði Gunnar.
„Það er svekkjandi að horfa á liðið spila svona seinna hálfleik þar sem við vorum töluvert betra liðið á vellinum og klúðrum 3-4 dauðafærum.\"

„Maður er auðvitað hundóánægður, við skorðuðum 3 mörk og eigum að vinna leik þegar við skorum 3 mörk.\"


Gunnar var svo spurður út í skiptingu sem Selfoss gerði í fyrri hálfleik þegar Toni Espinosa virtist fara pirraður út af vellinum og taka sér sæti á bekknum án þess að vera beðinn um það. Gunnar gaf þó lítið fyrir það.

„Við þurftum að gera breytingu snemma í leiknum því það var ekkert að ganga upp.\"

Viðtalið í heild sinni má sjá í meðfylgjandi spilara.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.