Ísland vann góðan 1-0 sigur á Albaníu í fyrsta heimaleik Íslands í undankeppni EM 2020.
„Sterkur sigur liðsheildarinnar að endalokum í dag. Einstaklingsframtakið hjá Jóa var bara snilld en annað en það bara mjög solid. Mér finnst þeir ekki ógna okkur mikið í leiknum, við vorum að halda þeim vel niðri," sagði Hjörtur Hermannsson eftir leikinn í dag.

Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Albanía
Hjörtur var að spila sinn fyrsta keppnisleik fyrir landsliðið og sagði það mikinn heiður.
„Þetta er það sem maður vil gera, manni er búinn að dreyma um þetta lengi eftir alla þessi yngri landsleiki og alla æfingaleikina með A-landsliðinu. Frábært að fá þetta tækifæri og ég geng sáttur frá borði í dag."
Birkir Már Sævarsson hefur átt þessa stöðu í mörg ár og sagði Hjörtur að Birkir væri búinn að hjálpa sér mikið í undirbúning fyrir leikinn.
„Birkir fær mikið hrós frá mér, hann er búinn að vera æðislegur við mig, búinn að styðja mikið við bakið á mér og á mikið hrós skilið. Hann er ekkert að hengja haus og er bara búinn að hjálpa mér í þessu."
Athugasemdir