Emil Ásmunds ráðinn til starfa hjá ÍA

Mynd: ÍA

Mynd: ÍA
Emil Ásmundsson hefur verið ráðinn styrktarþjálfari ÍA. Hann gerir samning út tímabilið.
Emil er 31 árs gamall en hann lagði skóna á hilluna í fyrra. Hann lék lengst af með uppeldisfélagi sínu Fylki en lék einnig með KR hér heima. Hann spilaði sína fyrstu leiki 17 ára gamall og hélt til Brighton í kjölfarið þar sem hann var í akademíu félagsins.
Hann er með BSc-gráður i íþrótta- og heilsufræði og hefur lokið ÍAK-menntun í styrktarþjálfun. Hann var áður styrktarþjálfari hjá Fylki.
Emil fer með Skagamönnum til Akureyrar á morgun þar sem liðið heimsækir KA. ÍA er í 9. sæti með 15 stig, fimm stigum á undan KA sem er í 10. sæti.