Fotbolti.net
08.06.20 - 21:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dusan: Úrslitin í leiknum skipta engu máli

Auglýsing
Dusan við hlið Zinedine Zidane árið 2015.

Dusan við hlið Zinedine Zidane árið 2015.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Hertz
„Það var erfitt að finna mitt besta liðið. Ég hef stýrt liðinu í fimm daga á æfingum en úrslitin í þessum leik skipta engu máli, við vildum sýna hvað við getum gert, hvaða leikkerfi spila og svo prófað einhverja leikmenn," sagði Dusan Ivkovic, þjálfari Fjölnis, eftir 0-5 tap gegn Augnabliki í Mjólkurbikarnum í kvöld.
Dusan tók við Fjölnisliðinu á dögunum í kjölfarið á því að Helena Ólafsdóttir hætti óvænt með liðið. Hvernig var að taka við hópnum á þessum tímapunkti, rétt fyrir mót?

„Þjálfaraskiptin höfðu ekki áhrif á móralinn í liðinu. Ég er rosalega ánægður með stelpurnar hvernig þær tóku á móti mér. Það tekur smá tíma að rífa hópinn upp en það gengur allt vel hvað æfingar varðar og slíkt."

Er Dusan með eitthvað markmið í huga fyrir Fjölnisliðið í sumar?

„Það er erfitt að setja markmið fyrir sumarið. Ég horfi í þetta leik fyrir leik. Við höfum stuttan tíma til að lyfta forminu aðeins upp og stilla línurnar," sagði Dusan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.