„Ég ræddi við Christian í morgun og hann er í góðu skapi og er með fjölskyldu sinni. Vonir standa til að hann fái að fara heim bráðlega," segir Morten Boesen, læknir danska landsliðsins.
Christian Eriksen hneig niður í vináttulandsleik Danmerkur gegn Úkraínu í gær og leik var hætt eftir 65 mínútur. Eriksen, sem er 34 ára, komst fljótt til meðvitundar og gat gengið af velli.
Eriksen fékk hjartastopp í landsleik 2021 og þá var græddur í hann bjargráður. Átta mánuðum eftir hjartastoppið fór hann að leika að nýju með Brentford og gekk síðan í raðir Manchester United.

Boesen segir að bjargráðurinn hafi virkað nákvæmlega eins og hann hafi átt að gera.
Eftir atvikið í gær telja margir að ferli Eriksen sé lokið. Þar á meðal er sparkspekingurinn Morten Bruun sem býst við því að miðjumaðurinn hafi leikið sinn síðasta landsleik. Eriksen hefur leikið 150 landsleiki fyrir Danmörku og skorað 46 mörk.
Danmörk var yfir í leiknum þegar leikurinn var stöðvaður í gær en hvorki Danmörk né Úkraína verða með á HM.