Katla Tryggvadóttir hefur tekið stór skref á fyrsta tímabili sínu með ítalska félaginu Fiorentina. Hún segir lífið í Flórens fara gríðarlega vel með sig og finnur hvernig hún hefur stækkað sem karakter í nýju umhverfi.
„Bara vel, mér líður vel þarna,“ segir Katla aðspurð um hvernig Ítalía sé að fara með hana. „Góður fótbolti og mikið af góðum leikmönnum. Ógeðslega professional umhverfi sem ég er í, þannig ég nýt mín bara og get eiginlega ekki beðið eftir næsta tímabili og fá að sanna mig ennþá meira í ítölsku deildinni.“
Katla segir að flutningurinn til Ítalíu hafi verið mikið lærdómsferli.
„Þetta var náttúrulega bara bæði að flytja í nýtt land, nýr kúltúr og ný menning er ein hliðin og svo er hin hliðin bara fótboltinn, töluvert betri leikmenn þarna, boltinn er hraðari.“
Hún telur sig hafa tekið framförum á nær öllum sviðum.
„Ég held að ég hafi bætt mig bara á flestum sviðum og stækkað sem karakter líka.“
Katla og Hlín Eiríksdóttir eru miklar vinkonur og léku saman hjá Fiorentina síðasta hálfa árið þar sem Hlín var í láni frá Leicester. Óvissa ríkir þó um hvort Hlín verði áfram á Ítalíu á næsta tímabili.
„Það er bara spurningamerki sko, ‘I wish I knew‘, það verður bara að koma í ljós,“ segir Katla um framtíð vinkonu sinnar. „Það var geðveikt að hafa hana, eiginlega bara draumur. Við áttum gott hálft ár saman og svo verðum við bara að sjá til.“



