Enn ein meiðslin í bakvarðarstöðunni - „Auðvitað hef ég áhyggjur“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, gæti þurft að finna aðra lausn í hægri bakvarðarstöðuna fyrir leikinn gegn Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Reece James gat ekki verið með Englendingum gegn Panama í lokaumferð riðlakeppninnar vegna meiðsla og gæti einnig misst af leiknum gegn Kongó.
Jarell Quansah byrjaði í hægri bakverði í gær en meiddist á ökkla og verður frá í nokkra daga.
Tuchel segist hafa áhyggjur af stöðunni en að hann og þjálfarateymið muni finna lausn á vandamálinu.
„Þetta er klassísk ökklatognun og hann finnur fyrir sársauka. Hann sagðist hafa lent í þessu áður og að þetta væri bara spurning um daga. Hann er með fótinn uppi og er að kæla þetta.“
„Auðvitað hef ég áhyggjur því þetta eru enn ein meiðslin í þessari stöðu.“
„Þetta verður tæpt kapphlaup hjá Reece James og sömuleiðis Quansah en það er okkar starf að finna lausnir og við munum gera það,“ sagði Tuchel.
Tuchel hefur nú Djed Spence til taks í hægri bakverðinum og mögulega Ezri Konsa. Trent Alexander-Arnold, leikmaður Real Madrid, var ekki valinn í landsliðið og var ekki heldur kallaður inn í stað Tino Livramento, sem yfirgaf hópinn í byrjun mótsins.