Fotbolti.net
08.07.22 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Di Maria til Juventus (Staðfest)

Di Maria með Max Allegri, stjóra Juventus.

Di Maria með Max Allegri, stjóra Juventus.

Canon

Mynd: Juventus

Argentínumaðurinn Angel Di Maria er genginn í raðir ítalska stórliðsins Juventus.
Di Maria kemur til Juventus eftir að samningur hans við Paris Saint-Germain rann út.

Di Maria er 34 ára og hefur leikið með PSG frá 2015.

Núna prófar hann nýja áskorun og mun hann leika með Juventus á næstu leiktíð.

Hann er ekki eini leikmaðurinn sem mun koma til Juventus á frjálsri sölu í sumar því miðjumaðurinn Paul Pogba er einnig á leiðinni. Verða félagaskipti hans líklega staðfest einhvern tímann í næstu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.