Fotbolti.net
08.07.22 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Milan festir kaup á Junior Messias (Staðfest)

Milan festir kaup á Junior Messias (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski kantmaðurinn Junior Messias er búinn að gera tveggja ára samning við AC Milan eftir að hafa unnið Ítalíumeistaratitilinn með félaginu á síðustu leiktíð.

Saga Messias er mögnuð en þessi 31 árs gamli leikmaður lék í utandeildum fyrstu ár ferilsins og var orðinn 25 ára gamall þegar hann spilaði loksins í D-deildinni á Ítalíu.

Eftir það lá leiðin aðeins uppávið. Messias gerði vel og færði sig upp í C-deildina, svo B-deildina og þar fór hann upp í efstu deild með Crotone og skoraði níu mörk í 36 deildarleikjum.

Messias vakti verðskuldaða athygli á sér og var lánaður til Milan en meiddist á undirbúningstímabilinu. Þegar hann kom úr meiðslum tókst Brassanum að ryðja sér leið í liðið og skoraði hann 5 mörk í 26 leikjum auk þess að gefa tvær stoðsendingar.

Messias náði síðustu tveimur leikjunum í riðlakeppni Meistaradeildar og þar skoraði hann eina mark leiksins í sigri gegn Atletico Madrid og lagði svo upp eina mark Milan í tapi gegn Liverpool.

Milan borgar tæpar 4 milljónir evra fyrir Messias eftir að hafa greitt um 3 milljónir fyrir lánssamninginn sem gerir heildarverðið 7 milljónir. Það var kaupréttur í lánssamningi Messias en Milan leyfði honum að renna út og keypti leikmanninn viku seinna.

Messias spilar á hægri kantinum og minnir leikstíll hans helst á Arjen Robben fyrrum landsliðsmann Hollands og leikmann FC Bayern.

Milan festir kaup á Junior Messias (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.