Fotbolti.net
08.07.22 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Siggi Dags lánaður í ÍR (Staðfest) - Má spila í kvöld

Siggi Dags lánaður í ÍR (Staðfest) - Má spila í kvöld
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

ÍR hefur krækt í liðsstyrk fyrir átökin framundan í 2. deild karla. Sigurður Dagsson er gengin í raðir ÍR á láni frá Val.
Sigurður, eða Siggi eins og er oft kallaður, kannast ágætlega við sig í Breiðholti því hann lék sjö leiki með liðinu seinni hluta tímabilsins í fyrra.

Sigurður er fæddur árið 2002, er uppalinn hjá Val og hefur komið við sögu í einum leik með liðinu í sumar.

Hann kemur úr mikilli Valsfjölskyldu og er skírður í höfuðið á afa sínum sem er goðsögn hjá Val. Faðir Sigurðar er handbolta goðsögnin Dagur Sigurðsson.

Árið 2018 æfði Sigurður hjá RB Leipzig í Þýskalandi og lék á sínum tíma þrjá leiki með U16 landsliði Íslands.

ÍR er í 6. sæti 2. deildar með fjórtán stig eftir tíu leiki. Næsti leikur liðsins er gegn toppliði Njarðvíkur á útivelli í kvöld.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Sigurður Dagsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.