Fotbolti.net
08.07.22 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Sociedad borgar 30 milljónir fyrir Mendez og Cho (Staðfest)

Sociedad borgar 30 milljónir fyrir Mendez og Cho (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Sociedad er búið að festa kaup á kantmanninum Brais Mendez frá Celta Vigo.

Mendez, 25 ára, er hægri kantmaður að upplagi en getur einnig leikið á miðjunni. Hann hefur verið leikmaður Celta síðastliðinn áratug og á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Spán.

Sociedad er talið borga 15 milljónir evra fyrir Mendez sem á tæpa 200 leiki að baki eftir fjögur og hálft ár með aðalliði Celta.

Sociedad endaði í 6. sæti deildarinnar í fyrra og er að styrkja hópinn fyrir komandi átök í Evrópudeildinni. Mendez er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Sociedad í sumar eftir komu Mohamed-Ali Cho.

Mohamed-Ali er 18 ára Frakki sem kemur frá Angers í heimalandinu fyrir um 14 milljónir evra. Hann leikur sem framherji þar sem hann er fremsti maður að upplagi en getur einnig spilað á köntunum.

Cho á 52 leiki að baki í efstu deild franska boltans þrátt fyrir ungan aldur. Á síðustu leiktíð skoraði hann fjögur mörk og gaf eina stoðsendingu í 32 leikjum.

Táningurinn ólst upp bæði á Englandi og í Frakklandi og er með tvöfalt ríkisfang. Hann lék tvo leiki fyrir U16 landslið Englands en skipti svo yfir og hefur spilað tíu leiki fyrir U19 og U21 landslið Frakka.

Mendez skrifaði undir sex ára samning við Sociedad og Cho krotaði undir fimm ár.

Sociedad borgar 30 milljónir fyrir Mendez og Cho (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.