08.07.22 - 15:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tómas Bent lánaður í KFS (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur ákveðið að lána miðjumanninn Tómas Bent Magnússon í KFS út tímabilið. Tómas er tvítugur og er uppalinn hjá Fylki og ÍBV.
Hann lék í tíu leikjum með ÍBV í Bestu deildinni í sumar og því einungis einu sinni ekki komið við sögu á tímabilinu. Það var í síðasta leik þegar botnlið ÍBV gerði jafntefli gegn toppliði Breiðabliki um síðustu helgi.

Síðasta sumar lék hann í tuttugu leikjum og skoraði eitt mark þegar ÍBV vann sér sæti í efstu deild.
KFS er í 8. sæti í 3. deild og á næst leik gegn Vængjum Júpíters á morgun.
KFS hefur einnig fengið þá Birki Björnsson, Nökkva Guðmundsson og Nökkva Snæ Óðinsson frá ÍBV.