„Heimavöllurinn draumaandstæðingur í 8-liða úrslitum“
Auglýsing

Dominic Furness, þjálfari Kormáks/Hvatar

Mynd: Kormákur/Hvöt

Kormákur/Hvöt fengu Kára í heimsókn í 16-liða úrslitum Gatorade-bikarsins, en heimamenn sigruðu 4-1 eftir vítaspyrnukeppni.
Fótbolti.net var á svæðinu og fékk Dom Furness, þjálfara Kormáks/Hvatar, í spjall eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Kormákur/Hvöt 7 - 4 Kári
„Ef ég á að vera hreinskilinn þá er þetta bara léttir„ sagði Dom.
„Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik og fannst að ef við hefðum haldið áfram eins þá hefðum við getað unnið frekar þægilega, fáum svo á okkur þessi tvö mörk og síðan kemur Siggi með þetta frábæra jöfnunarmark til að koma okkur í vítaspyrnukeppnina, svo það er ekkert nema léttir.''
Fyrr á tímabilinu sigraði Kormákur/Hvöt Kára 4-1 á Blönduósvelli og var Dom spurður út í hvort hann vonaðist eftir svipuðum leik.
„Já, ég vonaðist til þess. Með það í huga að þetta væri bikarleikur vissi maður að spennustigið yrði hátt og það yrði erfitt að brjóta sig í gegnum mið-blokkina þeirra. Við vildum halda boltanum eins og í seinasta leik gegn þeim sem við gerðum en við þurfum að gera betur í því að nýta færin okkar.''
Jón Þór Valdimarsson, markvörður Kormáks/Hvatar spilaði nánast allan leikinn en eftir jöfnunarmarkið kom Uros Djuric inná í hans stað.
Jón var algjörlega frábær í þessum leik en þetta var einungis vegna hve góður Uros er í vítaspyrnum. Þetta var erfið ákvörðun en mér fannst hún sú rétta fyrir liðið.''
Að lokum var Dom spurður út í draumaandstæðing fyrir 8-liða úrslitin, en svar hans var einfalt.
„Heimaleikur, það er draumaandstæðingurinn.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.